Ragnar Sigurður hefur störf hjá Viðskiptaráði

Ragnar Sigurður Kristjánsson er nýr sérfræðingur á hagfræðisviði Viðskiptaráðs

Ragnar Sigurður Kristjánsson, nýr sérfræðingur á hagfræðisviði Viðskiptaráðs

Ragnar er með BS próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og lauk meistaraprófi í alþjóða- og stjórnmálahagfræði frá Nanyang tækniháskólanum í Singapúr árið 2022. Undanfarið hefur hann starfað sem fulltrúi í upplýsingadeild utanríkisráðuneytisins og kom þar meðal annars að undirbúningi Reykjavíkurfundar leiðtoga Evrópuráðsins. Áður var Ragnar starfsnemi á aðalræðisskrifstofu Íslands í New York auk þess að starfa fyrir Minjastofnun og Upplýsingamiðstöð Djúpavogs.

Starf Ragnars Sigurðar hjá Viðskiptaráði mun fyrst og fremst snúa að málefnastarfi og útgáfu ráðsins, svo sem hagfræðilegum greiningum, skýrslugerð og öðrum skrifum auk þátttöku í öðrum verkefnum.

Ragnar hefur störf í dag og bjóðum við hann velkominn í hópinn!