Peningamálafundur Viðskiptaráðs

Staðsetning: Hilton Nordica - Salur H/I kl. 08:15

Föstudaginn 6. nóvember stendur Viðskiptaráð fyrir árlegum morgunverðarfundi í tilefni útgáfu Peningamála Seðlabanka Íslands. Aðalræðumaður á fundinum verður Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sem mun ræða stöðu efnahagsmála og svara spurningum fundargesta að erindi loknu. Í kjölfarið fer fram pallborðsumræða milli fulltrúa Seðlabankans og atvinnulífsins sem og fundargesta, en þar taka til máls:

  • Þórður Friðjónsson, forstjóri NasdaqOMX Ísland
  • Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP
  • Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls og formaður Viðskiptaráðs
  • Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri IcePharma
  • Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans

Stefna og aðgerðir Seðlabanka Íslands skipta allt atvinnulíf á Íslandi verulegu máli og verður erindi seðlabankastjóra því án efa áhugavert. Þetta á ekki síst við í ljósi samþykktar AGS á fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands, sem veitti ríkissjóði aðgang að öðrum hluta af lánafyrirgreiðslu AGS sem og aðgang að fyrsta fjórðungi lánafyrirgreiðslu Norðurlandanna og Póllands. Áhrif þessa sáust glögglega um helgina þegar Seðlabankinn ákvað að hefja afléttingu gjaldeyrishafta sem og í dag þegar bankinn ákvað að lækka stýrivexti.

Fundurinn hefst kl. 8:15 og stendur til kl. 10:00 á Hilton Reykjavík Nordica (Salur H/I). Fundargjald er kr. 3.500 með morgunverði. Fundurinn er öllum opinn.

peningamal

Tengt efni

Ríflega 100 manns skráðir á árlegan peningamálafund

Góð skráning er á árlegan morgunverðarfund Viðskiptaráðs í tilefni útgáfu ...
5. nóv 2009

Morgunverðarfundur með seðlabankastjóra

Föstudaginn 6. nóvember
4. nóv 2009