Opinn fundur um Beinu brautina: Fyrirtækin taki frumkvæðið

Þriðjudaginn 22. mars næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Félag atvinnurekenda, efnahags- og viðskiptaráðuneytið og fjármálaráðuneytið fyrir morgunverðarfundi til að ræða framvindu Beinu brautarinnar. Þátttaka er endurgjaldslaus, en fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík og hefst kl. 08:30.

Á fundinum munu taka til máls Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra, Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda auk fulltrúa þriggja fyrirtækja sem hafa nýtt sér úrræði Beinu brautarinnar. Þá munu fulltrúar bankanna taka þátt í pallborðsumræðum í lok fundar.

Að auki gefst fundargestum færi á að ráðfæra sig við ýmis fyrirtæki sem veita ráðgjöf á þessu sviði, en yfirlit yfir þau má nálgast á upplýsingasíðu Viðskiptaráðs um Beinu brautina.

Tengt efni

Betra er brjóstvit en bókvit

Eru bækur dýrar?
28. okt 2022

Beina brautin: Fyrirtækin taki frumkvæðið

Þriðjudaginn 22. mars næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök ...
22. mar 2011

Kynningarfundur: úrvinnsla skuldamála fyrirtækja

Samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja hefur nú ...
17. des 2010