Beina brautin: Áfanga náð en töluvert verk óunnið

Um miðjan desember 2010 var undirritað samkomulag, sem kallað var Beina brautin, sem ætlað var að flýta fjárhagslegri endurskipulagning og úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að samkomulaginu standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Viðskiptaráð Íslands, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Samtök fjármálafyrirtækja.

Í samkomulaginu var gert ráð fyrir því að ljúka tillögugerð um fjárhagslega endurskipulagningu þeirra fyrirtækja sem falla undir samkomulagið fyrir 1. júní 2011. Viðskiptabankarnir þrír hafa náð því markmiði, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, og því ber að fagna. Samkvæmt frétt Arion banka féllu 470 fyrirtæki undir samkomulagið og þar af er um 320 málum að fullu lokið en um 150 fyrirtæki eiga enn eftir að taka afstöðu til tilboðs bankans. Samkvæmt Íslandsbanka fengu 250 fyrirtæki tilboð frá bankanum vegna Beinu brautarinnar. 

Landsbankinn hefur gert öllum fyrirtækjum sem falla undir Beinu brautina tilboð um endurskipulagningu skulda. 355 fyrirtæki voru í upphafi talin geta nýtt sér Beinu brautina en 230 þessara fyrirtækja fengu tilboð fyrir 1. júní. Þá eru 75 fyrirtæki sem ekki hafa enn skilað inn nauðsynlegum gögnum eða hafa óskað eftir því að bíða með endurskipulagningu skulda sinna þar til niðurstaða dómstóla um lögmæti erlendra lána liggur fyrir. Við samruna Landsbankans og Spkef bættust um 110 fyrirtæki við sem hugsanlega geta nýtt sér Beinu brautina. Af þeim fjölda er líklegt að um 70 fái tilboð um endurskipulagningu skulda í júní.

Aukning vanskila vandamál
Þessar jákvæðu fregnir koma þó á sama tíma og fregnir af því að alvarlegum vanskilum fyrirtækja fer fjölgandi. Þetta má m.a. sjá í nýlegri útgáfu Seðlabanka Íslands en þar kemur fram að um 6.500 fyrirtæki séu í alvarlegum vanskilum í apríl 2011 en þeim fyrirtækjum hefur raunar fjölgað um 200 í maí og eru þau nú um 6.700 talsins. Fyrirtæki í alvarlegum vanskilum hefur því fjölgað um 46% síðan í mars 2009. Vandinn er því enn umfangsmikill og hætt við því að fjölmörg af þeim fyrirtækjum sem hafa farið í gegnum endurskipulagningu þurfi að fara aftur í gegnum skuldaúrvinnslu ef vanskil halda áfram að aukast.

Upplýsingasíðu Viðskiptaráðs um Beinu brautina má finna hér.

Tengt efni

Eignarhald íslenska ríkisins á skjön við önnur vestræn ríki 

„Að mati Viðskiptaráðs á hið opinbera ekki að stunda atvinnurekstur sem aðrir ...
12. mar 2024

Hver er þín verðbólga?

Viðskiptaráð hefur sett upp reiknivél sem gerir hverjum og einum kleift að ...
17. ágú 2022

Hver er þín verðbólga?

Reiknivél Viðskiptaráðs sem gerir hverjum og einum kleift að reikna sína ...
13. mar 2023