Úttekt á stjórnarháttum: Lánasjóður sveitarfélaga ohf. til fyrirmyndar

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. er fimmta fyrirtækið til að ljúka formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja og annað opinbera hlutafélagið. Úttektarferlið var sett á laggirnar á fyrrihluta árs 2011 með samstarfssamningi Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. er opinbert hlutafélag í eigu íslenskra sveitarfélaga, sem eru 75 talsins, og starfar undir eftirliti Fjármálaeftirlits. Meginhlutverk lánasjóðsins er að tryggja íslenskum sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum með veitingu lána eða ábyrgða. Útlán hans takmarkast þó við verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu.

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. lauk úttektarferlinu í byrjun þessa árs, en það var KPMG sem annaðist hlutverk úttektaraðila. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst lánasjóðurinn úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Lánasjóði sveitarfélaga ohf. er heimilt að nota merki úttektarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn.

Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur til þess formlega úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. sem og tekur viðtöl við einstaka stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.

Stjórninni stendur til boða í kjölfarið að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.

Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að reyna eftir fremsta megni að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.

Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Lánasjóð sveitarfélaga er aðgengileg hér.

Frekari upplýsingar um úttektina eru aðgengilegar hér.

Tengt efni

Átján fyrirmyndarfyrirtækjum í stjórnarháttum veitt viðurkenning

Hópur fyrirtækja í fjölbreyttri starfsemi hlaut í dag verðlaun fyrir góða ...
22. ágú 2023

Fyrirmyndarfyrirtækjum veitt viðurkenning

Sextán fyrirtæki þar sem starfshættir stjórna eru vel skipulagðir og framkvæmd ...
26. ágú 2022

Fimmtán fengu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti

Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland ...
24. ágú 2021