Hið opinbera: Get ég aðstoðað?

Viðskiptaþing 2024 fer fram 8. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica og hefst kl. 13:00.

Starfsemi hins opinbera skiptir okkur öll máli, hvernig þjónustu það veitir, hversu skilvirk þjónustan og önnur starfsemi er og hversu miklu fé er varið til hennar, en ríkið eitt veltir um það bil þriðju hverri krónu árlega sem verður til í hagkerfinu. Hvernig tekst til hefur áhrif á samkeppnishæfni atvinnulífsins og lífsgæði fólks.

Til grundvallar þinginu liggur úttekt Viðskiptaráðs á rekstri, stofnunum og þjónustu hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga, skilvirkni ferla (eða skorti á henni), reglubyrði og ýmsum fleiri atriðum. Ætlunin er að nálgast efnið á lausnamiðuðum nótum, benda á leiðir til hagræðingar, tækifæri til að bæta þjónustu og nýta tækni betur og beina um leið sjónum að möguleikum til að fela einkaaðilum verkefni.

Fjallað verður um hagnýtingu gervigreindar, við fáum að heyra hvernig er að innleiða breytingar hjá hinu opinbera og hvað vanti upp á til að við náum betri árangri í rekstri og þjónustu. Einnig vörpum við upp spurningum eins og hvort skortur á samkeppni hamli umbótum hjá hinu opinbera og hvers vegna góð áform og loforð stjórnmálamanna dagi of oft uppi.

MEÐAL ÞEIRRA SEM KOMA FRAM ERU:

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs, flytja ávörp og Garðar Björnsson Rova, helsti sérfræðingur McKinsey á sviði gervigreindar, talar um gervigreind og tækifæri í opinberum rekstri.

Meðal annarra sem taka þátt eru Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri hjá Póstinum, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi Kara Connect, Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte, Andri Heiðar Kristinsson, fyrrverandi leiðtogi Stafræns Íslands og Snorri Másson, ritstjóri, sem stýrir umræðum fulltrúa atvinnulífs og stjórnmála.

Fundarstjórn verður í höndum Svanhildar Hólm Valsdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs.

//

Viðskiptaráð Íslands hefur staðið fyrir Viðskiptaþingi frá árinu 1975. Þingið er ein fjölsóttasta samkoma íslensks viðskiptalífs.

Miðasala er hafin á Tix.is

Verð á Viðskiptaþing 2024

  • Almennt miðaverð: 29.900 kr. 
  • Aðildarfélagar Viðskiptaráðs (ef 1-2 gestir): 20.900 kr. 
  • Aðildarfélagar Viðskiptaráðs (ef 3+ gestir): 18.900 kr. 

Innifalið í miðaverði: Aðgangur að þinginu og kaffiveitingar í hléi auk kokteils og léttra veitinga að dagskrá lokinni.

Tengt efni

Ávarp Ara Fenger á Viðskiptaþingi

Ari Fenger flutti opnunarávarp á Viðskiptaþingi 2024. Þetta var hans síðasta ...
12. feb 2024

Vel heppnað Viðskiptaþing

Viðskiptaþing fór fram fimmtudaginn 8. febrúar síðastliðinn. Yfirskrift þingsins ...
14. feb 2024

Viðskiptaþing 2024

Viðskiptaþing 2024 fer fram 8. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica og hefst kl. ...
8. feb 2024