Viðskipti og samvinna stuðla að framþróun ríkja


Fyrsta minning mín um mikilvægi þess að styðja við þá sem minna mega sín var þegar ég og vinkonur mínar, þá 7 ára, settum upp tombólu og gáfum ágóðann, heilar 3.640 kr. til Rauða Krossins – í fullvissu um að það myndi bæta heiminn. Þótt þessar krónur hafi eflaust ekki skipt sköpum fyrir Rauða Krossinn var þetta fyrsta skref okkar vinkvenna í því að gefa til hinna þurfandi úti í heimi – fólks sem við myndum aldrei hitta í eigin persónu. Það var langtum betri tilfinning en að hendast út í sjoppu og kaupa sælgæti fyrir ágóðann.

Öll ríki eru í þróun

Í einlægum tilraunum sem þessum hefur því miður nokkurs yfirlætis gætt í hugarfari og orðavali. Framlög til uppbyggingar í hinum svokölluðu „vanþróuðu“ ríkjum hafa oftar en ekki verið hugsuð og útfærð á forsendum þeirra sem kölluð eru „þróuð“ ríki. Þau vilja vel – en átta sig ekki endilega á því hvað samvinnuaðilinn þarf í raun eða hvað virkar í því samfélagi til lengri tíma. Stöldrum því aðeins við og gefum því gaum hve hrokafullt orðavalið er í raun um „vanþróuð“ og „þróuð“ ríki. Er ekki réttara og sanngjarnara að tala um há- og lágtekjuríki í þessu samhengi?

Sem betur fer hafa langflest samtök og fyrirtæki, einstaklingar og leiðtogar ríkja áttað sig á því að þróunarsamvinna snýst ekki um að gefa fjármagn í blindni eða þröngva eigin lausnum upp á önnur samfélög. Hún snýst um að huga að uppbyggingu þekkingar, kunnáttu og skipulags, sem til lengri tíma getur stuðlað að sjálfbærni og betri lífskjörum fyrir fólkið í viðkomandi landi og á þess forsendum.

Þróunarsamvinna er nefnilega ekki svo einföld að „þróuð ríki leiði vanþróuð ríki út úr fátækt“. Öll ríki eru í þróun og því hefur eitt mesta framfaraskrefið í þessum efnum verið í þeim nýmælum að hvetja fyrirtæki til þátttöku þar sem viðskipti eru notuð með beinum hætti til að stuðla að þróun. Með þessum hætti er samvinna milli ríkja nýtt með auknum tækifærum og velsæld fyrir alla sem að samstarfinu koma.

Íslensk fyrirtæki hefja þróunarsamvinnu með beinum hætti

Fyrstu íslensku fyrirtækin sem nú leggja í slíka vegferð, fyrir tilstilli samstarfssjóðs Utanríkisráðuneytisins við atvinnulífið um heimsmarkmiðin, eru Marel og Thoregs. Bæði fyrirtækin munu stuðla að aukinni þekkingu á tækni og vinnslu í matvælaiðnaði með það að markmiði að hafa bein áhrif á verðmæti afurða, uppbyggingu atvinnumöguleika og sjálfbæran vöxt starfsemi í viðkomandi landi. Með sjóðnum fá fyrirtækin aukin tækifæri til að leggja lóð á vogarskálar þróunarsamvinnu með því að leggja til þekkingu, fjármagn og búnað sem stuðlar að bættum lífskjörum í lágtekjuríkjum til lengri tíma, en geta líka skapað gagnkvæm viðskiptasambönd til framtíðar.

Fjölmörg íslensk fyrirtæki geta miðlað þekkingu sinni og reynslu í nýju umhverfi þar sem dýrmæt samvinna verður til og sem ryður jafnvel brautir nýsköpunar svo að báðir aðilar verða reynslunni ríkari. Frá ungum tombóluhaldara til fyrirtækjafrömuða – við eigum það flest sammerkt að vilja bæta heiminn. Með beinni þátttöku í þróunarsamvinnu erum við nokkrum skrefum nær.

Ásta Sigríður Fjeldsted

Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. september 2019

Tengt efni

Gera þarf breytingar á fjölda og fjármögnunarkerfi sveitarfélaga

Umsögn Viðskiptaráðs um drög að stefnu í málefnum sveitarfélaga (mál nr. 72/2023).
19. apr 2023

Þriggja daga helgi

Hlutfall vinnu og frítíma er ekkert náttúrulögmál, en stytting vinnutíma þarf að ...
6. sep 2022

Gunnlaugur Bragi til Viðskiptaráðs

Undanfarið hefur Gunnlaugur gegnt starfi upplýsingafulltrúa Rauða krossins á ...
16. ágú 2021