Icelandic Economy 2F 2022

Viðskiptaráð hefur birt nýja ársfjórðungslega útgáfu af The Icelandic Economy. Skýrslan er á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu samhengi.

Í nýútgefinni skýrslu Viðskiptaráðs er fjallað um hagþróun síðustu mánaða, samkeppnishæfni, nýútgefna fjármálaáætlun ríkisstjórnar, uppbyggingu hagkerfisins, stofnanaumgjörð og áhrif stríðsins í Úkraínu.

Hagtölur gefa til kynna að efnahagsbatinn hafi verið kröftugur á árinu 2021 og hagkerfið hafi tekið hratt við sér eftir faraldurinn. Þó má merkja töluverð áhrif vegna stríðsins í Úkraínu, sem endurspeglast meðal annars í aukinni óvissu á eignamörkuðum, hækkandi hrávöruverði og aukinni verðbólgu. Skammtímahagvísar gefa þó til kynna að horfur séu almennt góðar og bjartir tímar séu fram undan með kröftugum hagvexti.

Íslenskt efnahagslíf hefur gengið í gegnum miklar breytingar á síðustu árum og fyrir lítið, opið hagkerfi er nauðsynlegt að upplýsingagjöf til erlendra aðila sé öflug. Skýrslan er því send til fyrirtækja, alþjóðastofnana, opinberra aðila og viðskiptaráða víðs vegar um heiminn.

Viðskiptaráð býður upp á kynningar á skýrslunni. Nánari upplýsingar veita hagfræðingar ráðsins, Elísa Arna Hilmarsdóttir (elisa@vi.is) og Gunnar Úlfarsson (gunnaru@vi.is).

Tengt efni

Úthlutað úr Framtíðarsjóði Viðskiptaráðs 

Sex verkefni fengu styrk úr Framtíðarsjóði Viðskiptaráðs Íslands
23. feb 2024

„Við þurfum raunsæja nálgun“

Ávarp Ara Fenger, formanns Viðskiptaráðs, á Peningamálafundi Viðskiptaráðs sem ...
23. nóv 2023

Hver ber ábyrgð á verðbólgunni?

Ávarp formanns Viðskiptaráðs á Peningamálafundi sem fram fór í gær, 24. nóvember ...
25. nóv 2022