Námsstyrkir Viðskiptaráðs til framhaldsnáms erlendis

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Ráðið hefur jafnframt um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis og eru námsstyrkir Viðskiptaráðs 2013 nú auglýstir til umsóknar. Líkt og undanfarin ár verða veittir fjórir styrkir og fer afhending þeirra fram á Viðskiptaþingi, sem haldið verður miðvikudaginn 13. febrúar 2013.

Hverjir geta fengið styrk?
Tveir styrkir eru veittir til framhaldsnáms við erlenda háskóla eða aðra sambærilega skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess. Þá eru veittir tveir styrkir úr námssjóði um upplýsingatækni, sem eingöngu eru veittir umsækjendum í upplýsingatækninámi erlendis á framhaldsstigi. Hver styrkur er að upphæð kr. 400.000.

Hvert á að skila umsóknum?
Umsóknum skal skilað til Viðskiptaráðs Íslands, Kringlunni 7, 103 Reykjavík eða með tölvupósti á thorunn@vi.is og skulu þær merktar „Námsstyrkur 2013“. Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs er 25. janúar 2013, kl. 16:00. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér.

Nánari upplýsingar um Viðskiptaráð sem bakhjarl menntunar:

Tengt efni

Viðskiptaráð leitar að framkvæmdastjóra

Viðskiptaráð Íslands er heildarsamtök fyrirtækja, félaga og einstaklinga í ...
22. jan 2024

Nauðsynlegt er að tryggja samkeppnishæfan vinnumarkað

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ...
15. mar 2023

Viðskiptaráð leitar að lögfræðingi

Starf lögfræðings Viðskiptaráðs er laust til umsóknar
4. mar 2023