Námsstyrkir Viðskiptaráðs 2013

Viðskiptaráð Íslands hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis. Líkt og undanfarin ár verða veittir fjórir styrkir að fjárhæð krónur 400.000 og fer afhending þeirra fram á Viðskiptaþingi þann 13. febrúar næstkomandi. Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs 2013 rennur út klukkan 16.00 á föstudag, þann 25. janúar.

 

Hverjir geta fengið styrk?
Tveir styrkir eru veittir til framhaldsnáms við erlenda háskóla eða aðra sambærilega skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess. Þá eru veittir tveir styrkir úr námssjóði um upplýsingatækni, sem eingöngu eru veittir umsækjendum í upplýsingatækninámi erlendis á framhaldsstigi. Hver styrkur er að upphæð kr. 400.000.

Hvert á að skila umsóknum?
Umsóknum skal skilað til Viðskiptaráðs Íslands, Kringlunni 7, 103 Reykjavík eða með tölvupósti á thorunn@vi.is og skulu þær merktar „Námsstyrkur 2013“. Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs er 25. janúar 2013, kl. 16:00. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér.

Nánari upplýsingar um Viðskiptaráð sem bakhjarl menntunar:

Tengt efni

Aðalfundur Sænsk-íslenska viðskiptaráðsins

Aðalfundur Sænsk-íslenska viðskiptaráðsins verður haldinn miðvikudaginn, 29. ...
29. okt 2008

SPIS: Markaðsverkefni Íslandsstofu

Guðný Káradóttir, forstöðumaður sviðs matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar ...
26. okt 2016

BRÍS: Aðalfundur 2015

Aðalfundur Bresk-íslenska viðskiptaráðsins verður haldinn 8. desember ...
8. des 2015