Úttekt á stjórnarháttum: Íslandsbanki hf.

Íslandsbanki hf. hefur lokið formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja sem sett var á laggirnar á fyrri hluta árs 2011 með samstarfssamningi Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.

Íslandsbanki býður alhliða bankaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki og skiptast viðskiptaeiningar bankans í viðskiptabankasvið, fyrirtækjasvið, eignastýringu og markaði. Íslandsbanki starfrækir útibú víðsvegar um landið, en utan Íslands byggir Íslandsbanki á sérþekkingu og viðskiptasamböndum í sjávarútvegi og orkugeiranum.

Íslandsbanki í núverandi mynd var stofnaður í október 2008, en með sameiningu bankans við Byr árið 2011 samtvinnast saga bankans við sögu sparisjóðanna á Íslandi.

2014.3.12_Islandsbanki logoÍslandsbanki hf. lauk úttektarferlinu í janúar 2014, en það var KPMG sem annaðist hlutverk úttektaraðila. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst Íslandsbanki úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Íslandsbanka er heimilt að nota merki úttektarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi óska forsvarsmönnum Íslandsbanka til hamingju með áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því má með virkum hætti bæta stjórnarhætti fyrirtækja og um leið efla upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra um áherslur stjórnenda í atvinnulífinu.

Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur til þess formlega úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. sem og tekur viðtöl við einstaka stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.

Stjórninni stendur til boða í kjölfarið að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.

Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að reyna eftir fremsta megni að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.

Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Íslandsbanka hf. er aðgengileg hér.

Tengt efni

Ný útgáfa hagskýrslunnar „The Icelandic Economy 2017"

Ný útgáfa skýrslunnar „The Icelandic Economy: Current State, Recent Developments ...
11. ágú 2017

Er aðhaldinu lokið? Framvinda og horfur í rekstri hins opinbera

Fimmtudaginn 18. september, kl. 8.30-10.00, standa Viðskiptaráð Íslands og ...
18. sep 2014

Smiðja verðmætasköpunar

Þessi grein er ein aðsendra greina í skýrslu Viðskiptaráðs Íslands til árlegs ...
31. maí 2011