Námsstyrkir Menntasjóðs Viðskiptaráðs 2020

Styrkþegar í ár eru þau Árni Freyr Gunnarsson, Bjarni Kristinsson, Bjarni Kristinsson og Sigríður María Egilsdóttir. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð 1.000.000 kr.

Á Viðskiptaþingi 2020 voru árlegir námsstyrkir úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands kynntir. Fjórir nemendur voru valdir úr hópi 60 umsækjenda og hljóta þeir styrk að upphæð 1.000.000 kr. hver.

Styrkþegar í ár eru eftirfarandi:

  • Sigríður María Egilsdóttir - LLM við Stanford háskóla
  • Bjarni Kristinsson - Doktorsnemi í geimverkfræði við MIT háskóla
  • Árni Freyr Gunnarsson - Doktorsnemi í erfðafræðilegum læknavísindum og tölfræði við Oxford háskóla
  • Bríet Dögg Bjarkadóttir - Doktorsnemi í læknavísindum við Oxford háskóla

Valnefnd Námsstyrkjasjóðs MVÍ velur styrkþega. Í valnefndinni sitja dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, dr. Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, stjórnarmaður í Viðskiptaráði Íslands.

Löng hefð er fyrir veitingu styrkja á Viðskiptaþingi en styrkveitingin er hluti af stuðningi ráðsins við uppbyggingu menntunar, sem ráðið hefur sinnt með markvissum hætti allt frá stofnun árið 1917.

Viðskiptaráð óskar styrkþegum til hamingju með styrkina en þakkar um leið þeim fjölmörgu sem sóttu um, en það var mat valnefndarinnar í ár að valið hefði verið afar erfitt þar sem margar sterkar umsóknir hafi borist.

Tengt efni

Viðskiptaráð styrkir afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Gunnar Þorsteinsson, Helga Kristín Ólafsdóttir, Ísak Valsson ...
24. feb 2023

Ert þú í framhaldsnámi erlendis?

Nú er opið fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands ...
29. nóv 2022

Reiðir pennar

Haukur Viðar Alfreðsson, doktorsnemi í skattahagfræði, segir Viðskiptaráð fara ...
15. sep 2022