Opið fyrir umsóknir um rannsóknastyrki

Rannsóknasjóður Viðskiptaráðs Íslands er nú opinn fyrir styrkumsóknir. Sjóðurinn er nýr og veitir árlega styrki til einstaklinga vegna rannsókna og nýsköpunar tengdum framþróun menntunar og eflingu íslensks atvinnulífs.

Nánari upplýsingar má nálgast hér

Styrkjunum er ætlað að auka samkeppnishæfni Íslands með því að efla rannsóknir og nýsköpun sem nýtast íslensku menntakerfi eða atvinnulífi. Styrkirnir eru bundnir við verkefni sem styðja við eftirfarandi markmið:

  • Auka skilvirkni og gæði íslensks menntakerfis
  • Eflingu þekkingar á forsendum aukinnar verðmætasköpunar íslenks atvinnulífs

Valnefnd Rannsóknasjóðs skipa Eggert Benedikt Guðmundsson, Gísli Hjálmtýsson og Ragnhildur Geirsdóttir.

Tengt efni

Vilt þú efla samkeppnishæfni Íslands?

Nú er opið fyrir umsóknir um styrki úr Framtíðarsjóði Viðskiptaráðs Íslands. ...
5. des 2023

Skattadagurinn

Hinn árlegi Skattadagur Deloitte, í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands og Samtök ...
13. jan 2015