Afnema þarf áfengiseinokun að fullu

Viðskiptaráð telur frumvarpið vera skref í rétta átt en að ganga þurfi mun lengra og afnema að fullu einokunarverslun ríkisins á smásölu með áfengi.

Lesa umsögn í heild sinni

Viðskiptaráð hefur komið sjónarmiðum sínum á framfæri um frumvarp til breytinga á áfengislögum. Frumvarpið felur í sér að dregið verður úr einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis til neytenda. Viðskiptaráð telur frumvarpið vera skref í rétta átt en að ganga þurfi mun lengra og afnema að fullu einokunarverslun ríkisins á smásölu með áfengi.

Afleiðingin á slíkri einokun er sú að kraftar samkeppni leiða ekki til aukinnar hagkvæmni í rekstri líkt og raunin hefur verið í vefverslun með aðrar vörutegundir. Loks telur ráðið lýðheilsusjónarmið ekki eiga við um það frumvarp sem hér er kynnt enda er vefverslun erlendra nú þegar leyfileg og í fullri starfsemi. Því má fyrst og fremst búast við að selt magn flytjist frá erlendri verslun til innlendrar verslunar án þess þó að það aukist svo nokkru nemi.

Lesa umsögn í heild sinni

Tengt efni

Jafna þarf stöðu innlendra áfengisframleiðenda

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum.
24. mar 2022

Opinber þynnka

Er opinber þynnka eitthvað skárri en einkarekin?
24. mar 2022

Afnema þarf að fullu einokunarverslun ríkisins á smásölu með áfengi

Einokunarstaða ÁTVR hefur þær afleiðingar að kraftar samkeppni leiða ekki til ...
4. mar 2021