Chamber Cup 2014 - golfmót

Fimmtudaginn 28. ágúst fer fram hið árlega golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráðanna, International Chamber Cup, á Korpúlfsstaðavelli (Golfklúbbi Reykjavíkur). Ræst verður út milli kl. 13-15.

Allir félagar Amerísk-, Dansk-, Færeysk-, Finnsk-, Fransk-, Þýsk-, Grænlensk-, Ítalsk-, Norsk-, Spænsk- og Sænsk-Íslenska Viðskiptaráðsins, ICC og Viðskiptaráðs Íslands eru velkomnir.

Liðakeppni verður haldin samhliða hinu hefðbundna golfmóti. Einstaklingar sem vilja taka þátt skrá sig sem fulltrúa frá einu tilteknu viðskiptaráði. Athugið að það er ekkert hámark á því hversu margir geta leikið fyrir hvert ráð en lágmarkið eru þrír fulltrúar. Þrjú bestu skorin samkvæmt Stableford skorkerfinu (með forgjöf) telja fyrir hvert ráð. Það ráð sem hefur besta skorið vinnur og tekur með sér heim veglegan farandbikar.

Um mótið:

  • Stableford keppni með forgjöf
  • Einstaklingsverðlaun fyrir 1., 2., 3. og síðasta sæti
  • Chamber Cup liðaverðlaun (sjá að ofan)
  • Aukaverðlaun fyrir lægsta skorið í höggleik
  • Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins
  • Verðlaun fyrir bestu nýtnina á vellinum
  • Verð fyrir golf og mat er 9.900 kr. á mann (5.000 kr. ef annað hvort er valið).

Nánari upplýsingar veitir Kristín S. Hjálmtýsdóttir

Skráning hér

Tengt efni

Endurskoða þarf íþyngjandi ákvæði persónuverndarlaga

Umsögn Viðskiptaráðs, SA, SI, SFS, SVÞ, SAF, Samorku og SFF um frumvarp til laga ...
25. okt 2022

Skoða þarf fleiri hliðar á samkeppnisumhverfi íslenskra fjölmiðla

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið.
16. feb 2022

Sameiningin sem endaði ofan í skúffu

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, fjallar um áform stjórnvalda ...
5. ágú 2020