Peningamálafundur Viðskiptaráðs 2022

Hinn árlegi Peningamálafundur Viðskiptaráðs verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 24. nóvember kl. 8:30 undir yfirskriftinni Hver ber ábyrgð á verðbólgunni?

Á fundi ársins verður sérstök áhersla lögð á að ræða verðbólguþróun síðustu missera og horfur nú undir árslok. Þá verður sjónum beint að samspili peningastefnu og ríkisfjármála, áhrifum kjarasamninga og fleiru.

Venju samkvæmt munu formaður Viðskiptaráðs og seðlabankastjóri ávarpa fundinn. Þá munu seðlabankastjóri og fjármála- og efnahagsráðherra ræða áherslumál fundarins í pallborði.

Boðið verður upp á léttan morgunverð.

Athugið að fundurinn verður ekki sendur út í streymi og að miðafjöldi er takmarkaður.

Smelltu hér til að kaupa miða.

Miðaverð:

  • Aðildarfélagar Viðskiptaráðs: 4.900 kr.
  • Almennt miðaverð: 6.900 kr.
  • Háskólanemar: 2.900 kr. (nauðsynlegt að nota háskólanetfang við miðakaup)

Tengt efni

Tryggðu þér miða á Viðskiptaþing 2023

Miðasala er hafin á Viðskiptaþing sem haldið verður á Hilton Reykjavik Nordica ...
17. jan 2023

Miðasala hafin á Peningamálafund Viðskiptaráðs

Hinn árlegi Peningamálafundur Viðskiptaráðs verður haldinn á Hilton Reykjavík ...
11. nóv 2022