Úttekt á stjórnarháttum: Íslandspóstur ohf. til fyrirmyndar

Íslandspóstur ohf. er fjórða fyrirtækið til að ljúka formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja og jafnframt fyrsta opinbera hlutafélagið. Úttektarferlið var sett á laggirnar á fyrrihluta árs 2011 með samstarfssamningi Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.

Hlutafélagið Íslandspóstur varð til þegar Pósti og síma var skipt upp í upphafi ársins 1998. Fyrirtækið er einn stærsti vinnuveitandi landsins með tæplega 1200 starfsmenn. Það er ungt en samofið 230 ára sögu póstrekstrar á Íslandi. Hlutverk Íslandspósts er að veita þjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga á sviði dreifingar-, samskipta- og flutningalausna, svo og á öðrum sviðum sem tengjast þeirri starfsemi.

Íslandspóstur ohf. lauk úttektarferlinu í ágúst á síðasta ári, en það var KPMG sem annaðist hlutverk úttektaraðila. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst Íslandspóstur ohf. úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Íslandspósti ohf. er heimilt að nota merki úttektarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn. 

Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur til þess formlega úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. sem og tekur viðtöl við einstaka stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.

Stjórninni stendur til boða í kjölfarið að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.

Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að reyna eftir fremsta megni að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.

Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Íslandspóst er aðgengileg hér.

Frekari upplýsingar um úttektina eru aðgengilegar hér.

Tengt efni

Ný stjórn Viðskiptaráðs Íslands

Úrslit formanns- og stjórnarkjörs fyrir tímabilið 2022-2024 voru kynnt á ...
10. feb 2022

Er stórtækur atvinnurekstur hins opinbera náttúrulögmál?

Að viðskiptabönkunum undanskildum hefur stöðugildum hins opinbera í ...
26. nóv 2021

Úttekt á stjórnarháttum: Stefnir hf. til fyrirmyndar

Stefnir hf. er fyrsta fyrirtækið til að ljúka formlegu úttektarferli á ...
8. mar 2012