Nýr formaður Spánsk - íslenska viðskiptaráðsins

Sigríður Á. Andersen héraðsdómslögmaður var kjörinn formaður Spænsk-íslenska viðskiptaráðsins á aðalfundi félagsins sem haldinn var í september. Tók hún við af Úlfari Steindórssyni sem verið hafði formaður síðastliðin 4 ár. Í fyrsta sinn í sögu millilandaráða er kona kjörin formaður.

Spænsk-íslenska viðskiptaráðið var stofnað í Barcelona árið 1997 og er eitt átta millilandaráða Viðskiptaráðs Íslands. Félagar í ráðinu eru íslenskir og spænskir lögaðilar og einstaklingar sem eiga í hvers kyns viðskiptum milli landanna tveggja. Tilgangur ráðsins er að vaka yfir viðskiptahagsmunum félaga sinna og vera málsvari þeirra gagnvart stjórnvöldum í báðum löndum.

Viðskipti milli Íslands og Spánar hafa verið stöðug síðustu ár. Spánn er fimmti stærsti kaupandi íslensk útflutnings. Útflutningsverðmæti til Spánar er nú um 15,5 milljarðar króna á ári. Verðmæti út- og innflutnings hefur aukist jafnt og þétt en sem hlutfall af heildarútflutningi hefur útflutningur til Spánar aukist nokkuð. Vöruskiptajöfnuðurinn hefur jafnan verið Íslendingum hagstæður.

Spænsk-íslenska viðskiptaráðið hefur að markmiði að efla og auðvelda viðskipti milli landanna, bæði með tilliti til verðmætis og aukinna viðskiptatækifæra á fjölbreyttum sviðum.

Aðrir stjórnarmenn ráðsins eru þau Joaquín Armesto (Íslenska umboðssalan), Þorvarður Guðlaugsson ( Icelandair) , Edda Björnsdóttir (Karl. K. Karlsson) og Ásbjörn Björnsson ( Iceland Seafood) á Íslandi og þau Mario Rotllant Sola ( Copesco & Sefrisa S. A.), Hildur Eir Jónsdóttir ( Ernst & Young) og Karl Hjálmarsson ( Rok Marketing)  og Axel Net (Microblau) á Spáni.

Framkvæmdastjóri ráðsins er Kristín S. Hjálmtýsdóttir.

Nánari upplýsingar  kristin@chamber.is; 510 7109

Tengt efni

Hvert fer álið og hvaðan koma ávextirnir?

Greining á viðskiptum okkar við helstu viðskiptalönd – augljósar vísbendingar um ...
8. des 2021

Katrín Olga: Þarf samstöðu og vilja til að laga kynjahallann

Í ávarpi sínu á Viðskiptaþingi fór Katrín Olga Jóhannesdóttir, fráfarandi ...
13. feb 2020

Spánskur viðskiptadagur

Spánsk-íslenska viðskiptaráðið efnir til málþings um viðskipti milli Spánar og ...
28. jún 2011