Viðskiptaþing 2011: Námsstyrkir Viðskiptaráðs afhentir

Á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fer fram núna á Reykjavík Hilton Nordica, afhenti Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra styrki námsstyrki Viðskiptaráðs. Af því tilefni sagði Katrín fulla ástæða til bjartsýni á Íslandi og að það væri einkenni Íslendinga að takast á við vanda af bjartsýni. Að hennar mati væri líka gaman að sjá raunverulegan áhuga atvinnulífsins á að efla skólakerfið,

Löng hefð fyrir að Viðskiptaráð veiti styrki úr námssjóðum sínum á Viðskiptaþingi. Félagar Viðskiptaráðs í upplýsingatæknigeira veita einnig námsstyrki úr sérstökum námssjóði ráðsins um upplýsingatækni. Styrkirnir eru veittir námsmönnum í framhaldsnámi erlendis á háskólastigi í greinum sem tengjast atvinnulífinu. Síðarnefndu styrkirnir eru sérstaklega ætlaðir námsmönnum á sviði upplýsingatækni. Styrkirnir voru fimm að þessu sinni og var hver þeirra að fjárhæð kr. 400.000.-.


Hátt í á fjórða tug umsókna bárust þetta árið og hefðu margir umsækjendur verið vel að þessum styrkjum komnir. Það varð þó niðurstaðan að styrkina myndu hljóta í ár þau:

  • Ólafur Haraldsson, mastersnemi í gagnvirkri hönnun við Kolding School of Design í Jótlandi.
  • Ingibjörg Kristinsdóttir, mastersnemi í Human-Computer Interaction við Kungliga Tekniska Högskolan í Svíðþjóð.
  • Bjarni J. Vilhjálmsson, doktorsnemi í lífupplýsingatækni við University of Southern California.
  • Þórdís Anna Oddsdóttir, doktorsnemi í Management Engineering í Danmarks Tekniske Universitet (DTU) í Kaupmannahöfn.
  • Bjarni Már Magnússon, doktorsnemi í þjóðarétti við Edinborgarháskólann.

Ólafur, Ingibjörg og Bjarni hlutu styrkinn sem kenndur er við upplýsingatækni.

Viðskiptaráð óskar þeim til hamingju með styrkina og áframhaldandi velfarnaðar í námi og lífi.

Tengt efni

Viðskiptaráð styrkir afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Gunnar Þorsteinsson, Helga Kristín Ólafsdóttir, Ísak Valsson ...
24. feb 2023

Reiðir pennar

Haukur Viðar Alfreðsson, doktorsnemi í skattahagfræði, segir Viðskiptaráð fara ...
15. sep 2022

Laglegt regluverk óskast

Átak og áhersla á einfaldara og skilvirkara regluverk var á meðal loforða ...
2. nóv 2021