Metþátttaka á Viðskiptaþingi 2007

Hátt í 500 manns voru viðstaddir árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands og er það meiri þátttaka en nokkurn tíma áður. Meðal gesta voru lykilmenn í íslensku viðskiptalífi, ráðherrar, þingmenn, fræðimenn, erlendir sendiherrar og embættismenn. Yfirskrift þingsins var að þessu sinni: „Ísland, best í heimi?“ og þingið var tileinkað alþjóðlegu orðspori og ímynd Íslands.

Erindi fluttu Geir H. Haarde forsætisráðherra, Simon Anholt einn helsti sérfræðingur heims í ímynd þjóða, Erlendur Hjaltason forstjóri Exista og formaður Viðskiptaráðs og Halla Tómasdóttir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Þátttakendur í umræðum voru Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs, Lýður Guðmundsson starfandi stjórnarformaður Bakkavarar og Exista, Róbert Wessman forstjóri Actavis og Svafa Grönfeldt rektor Háskólans í Reykjavík. Fundarstjóri var Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, en Eva María Jónsdóttir, dagskrárgerðarmaður, stjórnaði umræðum.

Erindi Erlendar má nálgast hér.

Erindi Geirs má nálgast hér.

Yfirlit og glærur frá erindu Höllu má nálgast hér.

Glærur Simon Anholt má nálgast hér.

Þá afhenti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, fjóra námsstyrki Viðskiptaráðs, að upphæð 300.000 kr hver. Styrkþegarnir að þessu sinni voru Ásta Dís Óladóttir, Úlf Viðar Níelsson, Viðar Lúðvíksson og Jón Örn Guðbjartsson.

Upplýsingar um styrkþega má nálgast hér.

Viðskiptaráð átti frumkvæði að því að fyrir nokkrum mánuðum hófst sameiginleg vinna atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar um ímyndarmál Íslands. Starfshópur, sem starfaði undir stjórn Simon Anholt, var skipaður forsætisráðherra, utanríkisráðherra, viðskiptaráðherra, menntamálaráðherra auk fulltrúum Viðskiptaráðs. Í ræðu sinni sagði Simon niðurstöðu rannsóknar um ímynd Íslands, í samanburði við önnur ríki, sem gerð var meðal hátt í 30 þúsund manna í 35 löndum.

Tvær skýrslur voru gefnar út í tilefni af þinginu. Önnur ber nafnið „Iceland’s Advance“, en í henni er útrás íslenskra fyrirtækja á árunum 2001-2006 kortlögð. Hana má nálgast á rafrænu formi hér. Einnig er hægt að kaupa prentaða útgáfa á skrifstofu Viðskiptaráðs. Seinni skýrslan ber nafnið „Anholt Nation Brands Index: Iceland 2006“ og eru þar birtar niðurstöður framangreindrar rannsóknar. Hægt er að kaupa prentaða útgáfa af henni á skrifstofu Viðskiptaráðs.

Viðskiptaráð þakkar þeim fjölmörgu aðilum sem lögðu hönd á plóg við að gera þennan dag eins vel heppaðan og raun bar vitni. Það er von okkar að sú vinna sem nú þegar er hafin í kjölfar þingsins hljóti góðan hljómgrunn sem víðast.

Tengt efni

Reiðir pennar

Haukur Viðar Alfreðsson, doktorsnemi í skattahagfræði, segir Viðskiptaráð fara ...
15. sep 2022

Velkomin til framtíðarinnar, árið 2003

Landvernd kynnti tillögur um orkuframleiðslu og -skipti til ársins 2040 án ...
27. jún 2022

Stígum skrefið til fulls - öllum til hagsbóta

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur (mál nr. 470)
2. jún 2022