Athugasemdir Viðskiptaráðs við fyrirhugaðar skattabreytingar

Viðskiptaráð hefur fylgst náið með aðgerðum stjórnvalda á sviði ríkisfjármála á undanförnum vikum og mánuðum, sem margar hverjar eru afar misráðnar. Bæði fjárlagafrumvarp næsta árs og nýleg frumvörp á sviði skattlagningar bera með sér ríka niðurskurðarfælni af hálfu stjórnvalda – á tímum þegar lítið svigrúm er til slíkra viðhorfa. 

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar ásamt því að mæta fyrir efnahags- og skattanefnd Alþingis. VÍ gagnrýnir vinnubrögð Alþingis, en mikill skortur hefur verið á samráði við hagsmunaaðila. Einnig er fyrirætlun ríkisstjórnarinnar um að keyra frumvarpið í gegn á þeim litla tíma sem er til áramóta gangrýnisverð. Í dag eru einungis níu virkir dagar eftir af árinu.

Í aðgerðum sínum taka stjórnvöld ekki tillit til þess að veruleg aðlögun hefur þegar átt sér stað hjá heimilum og fyrirtækjum landsins. Þetta sést best á umtalsverðum samdrætti í einkaneyslu, meira en 10 þúsund töpuðum störfum, hruni í fjárfestingu einkaaðila, fjöldagjaldþrotum fyrirtækja og lækkandi launum á almennum vinnumarkaði. Um leið og þessum hópi er ætlað að bera auknar byrðar þá stefnir ríkið eingöngu að því að taka lítil skref í átt til niðurskurðar og aðhalds, þrátt fyrir verulega þenslu í útgjöldum þess undanfarin ár.

Breytingar á skattkerfinu eru ekki líklegar til að heimta tekjur af skilvirkni og munum við því standa uppi í verri stöðu en ella, þar sem tekjurnar sem vænst var eftir munu ekki skila sér í ríkissjóð.

Hér má nálgast umfjöllun VÍ um frumvarpið.

Tengt efni

Árangurslitlar aðgerðir á húsnæðismarkaði

„Stuðningsúrræði stjórnvalda hafa verið of almenn í gegnum tíðina og kostað háar ...
4. des 2023

Gerðardómur Viðskiptaráðs innleiðir stafræna lausn Justikal

"Með tilkomu stafræna réttarkerfisins getum við veitt skjólstæðingum okkar ...
24. apr 2023

Unnu sveitarfélögin stóra vinninginn í ár?

Viðskiptaráð hefur rétt þeim sveitarfélögum sem hyggjast lækka ...
16. júl 2022