Útgjöld skila ekki sjálfkrafa árangri

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um frumvarp til fjárlaga 2018. Viðskiptaráð telur fimm atriði mikilvægust í umræðunni um fjárlög ársins 2018.
19. des 2017

Ísland eina EES landið með einkarétt ríkis á póstþjónustu

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um drög að frumvarpi um póstþjónustu. Með frumvarpsdrögunum er lagt til að einkaréttur ríkisins á sviði póstþjónustu verði lagður niður og opnað verði fyrir samkeppni á póstmarkaði. Viðskiptaráð fagnar þessu skrefi og ...
16. ágú 2017

Jafnlaunavottun: tvenns konar réttmæt sjónarmið togast á

Viðskiptaráð hefur sent inn umsögn um frumvarp um jafnlaunavottun. Að mati ráðsins togast á tvenns konar réttmæt sjónarmið þegar kemur að frumvarpinu. Annars vegar ber að fagna aðgerðum sem miða að auknu jafnrétti kynjanna. Hins vegar ætti ávallt að reyna að lágmarka kostnað vegna regluverks.
16. maí 2017

Æskilegt að kanna möguleikann á lausasölulyfjum í almennum verslunum

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um tillögu til þingsályktunar um lyfjastefnu til ársins 2022. Hefur ráðið áður fjallað um sölu lausasölulyfja í verslunum og tekur sérstaklega undir það að kanna megi hvort æskilegt sé að heimila að selja tiltekin lausasölulyf í almennum verslunum.
5. maí 2017

Mælanleg markmið mikilvæg í ljósi útgjaldaaukningar

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2018-2022. Ráðið er hlynnt því að mótuð sé fjármálaáætlun til fimm ára í senn. Áætlunin eykur aga og yfirsýn í opinberum fjármálum og styrkir langtímahugsun í opinberum rekstri. Fyrri hluti umsagnarinnar ...
25. apr 2017

Hagræði fólgið í rafrænni fyrirtækjaskrá

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna frumvarps um rafræna fyrirtækjaskrá sem gera mun einstaklingum og lögaðilum kleift að skrá félög með rafrænum hætti. Augljós ávinningur er til staðar fyrir atvinnulífið og jafnframt skilar hún aukinni skilvirkni ...
24. apr 2017

Bílastæðagjald fýsilegt form gjaldtöku

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til Alþingis vegna frumvarps um bílastæðagjöld. Verði frumvarpið að lögum er ríki og sveitarfélögum heimilt að taka gjald af þeim sem leggja bifreiðum sínum við ferðamannastaði. Viðskiptaráð telur bílastæðagjöld vera fýsilegt form gjaldtöku, þau leggjast beint á ...
12. apr 2017

Lög um orlof húsmæðra tímaskekkja

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um frumvarp til laga um afnám laga um orlof húsmæðra. Frumvarpinu er ætlað að fella úr gildi lög um orlof húsmæðra og er það fagnaðarefni að mati ráðsins. Bendir ráðið á að atvinnuþátttaka kvenna hafi aldrei verið meiri (80% á árinu 2016) og því tímaskekkja að ...
24. mar 2017

Einföldun regluverks fagnaðarefni

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna frumvarps sem miðar að því að einfalda regluverk atvinnulífsins. Breytingarnar einfalda lagaum­hverfi vegna stofnunar, skráningar og starfrækslu fyrirtækja. Einnig eru lagðar til breytingar sem er ætlað að sporna ...
22. mar 2017

Forvarnir ákjósanlegri en frelsisskerðing

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn vegna breytinga á lögum um verslun með áfengi og tóbak. Með tillögunni er lagt til að einkaleyfi ÁTVR á smásölu áfengis verði aflagt og smásala áfengis verði að ákveðnu marki frjáls. Jafnframt er lagt til að heimilt verði að auglýsa áfengi með nánar tilgreindum ...
20. mar 2017

Þingsályktunartillaga um sölu ríkiseigna jákvætt skref

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um þingsályktunartillögu um sölu ríkiseigna, lækkun skulda ríkissjóðs og fjárfestingu í innviðum. Viðskiptaráð fagnar tillögunni og tekur undir með flutningsmönnum hennar að nauðsynlegt sé að hafa heildaryfirsýn yfir eignir ríkisins. Slík heildarsýn er til þess ...
3. mar 2017

Er fjármálastefna stjórnvalda byggð á sandi?

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um fjármálastefnu til áranna 2017-2022. Ráðið gerir athugasemdir við áætluð afkomumarkmið, þá sér í lagi vegna þeirra forsendna sem stefnan byggir á. Stefnan segir til um að hagvöxtur verði mikill, verðbólga lág og gengi í krónu haldist stöðugt. Þá gerir stefnan ...
2. mar 2017